Where: University of Iceland. Veröld, room VHV-104
When: Friday, february 6th, 3-5 PM
Áki Ásgeirsson leads a discussion on MIDI computer connectivity with church organs. Composers participating in the HyperOrgel project at the Intelligent Instruments Lab will attend and present their approaches.
Klais orgelið í Hallgrímskirkju var vígt árið 1992. Orgelið hefur 4 hljómborð og fótspil, 72 raddir og 5275 pípur. Orgelið er 15 metra hátt, vegur um 25 tonn og stærstu pípurnar eru um 10 metra háar. Árið 2013 var MIDI tengingu bætt við við spilaborð orgelsins sem er staðsett á kirkjugólfinu. Þá opnaðist sá möguleiki að tengja tölvu við orgelið og stjórna því með tölvu eða öðrum stjórntækjum. MIDI er einfaldur samskiptastaðall fyrir tónlist og hefur frá 1983 aðallega verið notaður til að tengja saman hljómborð og hljóðgervla. Tölvustýrð hljóðfæri lúta öðrum lögmálum en hljóðfæri sem leikið er á af mennskum flytjendum. Ákvarðanir tónskáldsins um hraða, tímasetningar og áslátt eru leiknar af hljóðfærinu án málamiðlana. Þannig er hægt að láta hljóðfærið leika af ofurnákvæmni en einnig er möguleiki að láta tölvuna leika ónákvæmt eftir fyrirfram gefnum forsendum. Gagnvirk orgel tónlist í samhengi við lifandi flutning hentar tölvustýrðu orgeli vel, auk flókinnar algrímskrar tónlistar og tónlistar sem unnin er með vélanámi. Tölvustýring orgelsins opnar sumsagt á nýja vídd í flutningi, túlkun, hljóðáferð og upplifun áheyrenda. HyperOrgel er verkefni Intelligent Instruments Lab, þverfaglegrar rannsóknarstofu innan Háskóla Íslands sem skoðar hlutverk gervigreindar í nýjum hljóðfærum og tækni almennt. Í Hallgrímskirkju verða kvöldtónleikar, hádegistónleikar, fyrirlestur og sömuleiðis tölvustýrð tónverk á opnunartíma kirkjunnar.
Where: University of Iceland. Veröld, room VHV-104 When: Friday, february 6th, 3-5 PM
We look forward to seeing you!
Free entry.